
Það fer að verða tímabært að mýkja upp raddböndin og rifja upp skólasönginn. Og skoðið endilega dagskrána á heimasíðu árgangsins, sú síða er aldeilis orðin lífleg.
Skólasöngur MA
Undir skólans menntamerki
mætast vinir enn í dag.
Sýnum öll í vilja og verki
vöxt og trú og bræðralag.
Forna dáð er fremd að rækja.
Fagrir draumar rætast enn.
Heill sé þeim, sem hingað sækja,
höldum saman, Norðanmenn.
Enn er liðinn langur vetur,
loftin blá og jörðin græn.
Hefji hver sem hafið getur
huga sinn í þökk og bæn.
Svo skal lofa liðna daga
að líta fram og stefna hátt.
Þá fær Íslands unga saga
æðra líf og nýjan mátt.
Allt skal lúta einum vilja.
Allt skal muna þennan dag.
Allir sem við skólann skilja
skulu syngja þetta lag.
Sýnum öll á sjó og landi
sigurþrek hins vitra manns.
Sýnum það að afl og andi
eigi skóla norðanlands.
Lag: Páll Ísólfsson
Ljóð: Davíð Stefánsson frá Fagraskógi
1 comment:
smá nostalgía: man enn þegar ég söng hann á 17.júní´83 sveitt í lófunum í útskriftinni og alveg svakabrún eftir ótæpilega ljósanotkun....en það var stíll á minni brún við hvítan kjól..maður klikkaði ekki á smáatriðum í þá daga. Mun syngja sönginn fullum hálsi og kanski full líka þann 16
Bryndís
Post a Comment