16.5.08

Óvissa með bekkjarpartý

Sú ákvörðun hefur verið tekin að máladeildarbekkirnir verði ekki með sameiginlegt bekkjarpartý eins og til stóð - Það stefnir í frábæra mætingu í báðum bekkjum og því erum við orðin nokkuð mörg. Þar sem menn eiga orðið sumarbústaði í hrönnum í b-inu er barist um að bjóða í partý þar en það er nú kannski ekki alveg pláss fyrir allt að 30 manns. Einnig bara skemmtilegra fyrir hvorn bekk að vera út af fyrir sig því við hittumst jú svo öll undir miðnættið á Græna hattinum. Hér með er lýst eftir sumarbústaðareiganda (í grennd við Akureyri) eða einhverjum sem hefur aðgang að einum slíkum (ja eða annars konar húsnæði) sem gæti hýst u.þ.b. 15 siðprúðar dömur eina kvöldstund. Gott væri að húsnæðið byði upp á eldunaraðstöðu (en er ekki bráðnauðsynlegt). Leggið nú endilega heilann í bleyti stúlkur mínar og hafið samband.
Anna Stína

3 comments:

Anonymous said...

Ef enginn staður finnst fyrir ykkur og mig elskurnar mínar....hef ég þetta bara í Norðurbyggðinni eins og venjulega. Þið bakið þá tertuna fyrir nýstúdentinn minn.
Bryndís

Steinunn said...

Það væri nú alveg frábært. Losnum þá við leigubílavesen og göngum syngjandi niður á Græna hattinn. Held við þurfum enga eldunaraðstöðu fyrir flögupokann og hvítvínið.

Anonymous said...

þið verðið bara að lofa því að haga ykkur einu sinni almennilega og missa ykkur ekki í drykkjulátum og rifrildi...og það er bannað að daðra við manninn minn og áreita kettina mína!
Bryndís partýhaldari

p.s Vorum við Anna Stína og Steinunn bara í þessum bekk...where are you girls...koma svooo