Nú er að duga (ja eða.......)
Ég hefði kannski átt að spara stóru orðin í síðustu færslu :) en þetta fór hratt af stað en hefur svo nánast lognast út af.
Það er aðeins um helmingur þeirra sem voru búnar að skrá sig (óformlega) í óvissuferð búinn að borga - það er reyndar búið að gefa frest til 4. júní en það er nú ekki langt í hann. Þið sem ekki eruð búnar að greiða - skellið ykkur í það hið fyrsta. Það má enginn missa af óvissuferðinni því hún verður án efa ógleymanleg.
Ég sest við tölvuna á morgun og býst þá við að rigni yfir mig meldingum!
Njótið nú lífsins í tilhlökkuninni - nú fer að þetta allt að skella á.
2.6.08
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
4 comments:
Hvernig væri nú að fara að súmmera- já góð íslenska upp það sem til stendur, rifja upp dagskrá og fara yfir tímasetningar, hvenær á að mæta hvert og á hvaða degi.
Eruð þið ekki spenntar eða hvað ?????????
Silla
aHvernig væri nú að fara að súmmera- já góð íslenska upp það sem til stendur, rifja upp dagskrá og fara yfir tímasetningar, hvenær á að mæta hvert og á hvaða degi.
Eruð þið ekki spenntar eða hvað ?????????
Silla
Já, þetta eru nú orð í tíma töluð Sigurlaug! Ég vísa á bréf sem Fríða setti inn i dag og hefur að geyma allar helstu upplýsingar varðandi allt - nema bekkjarpartý. Jú ætli við Bryndís verðum ekki að bretta upp ermarnar og fara að gefa út einhvern mætingartíma í bekkjarpartí o.þ.h.
Hvernig var það með gítarspilarann?
Var hann einhver í A-inu? Sá (sú) hinn sami vinsamlegast láti af sér vita. Ef einhver er til í að spila, á ég góðan gítar sem er sárlega vannýttur - en í góðu standi (hef lánað hann reglulega:)
Anna Stína
Ath. bréfið frá Fríðu er á heimasíðu árgangsins
Post a Comment