20.5.08

Partí á prestssetrinu?

Jæja stelpur, ég minnist þess ekki að við höfum verið svona fámálar og hógværar... Enn vantar okkur þak yfir höfuðið á laugardagskvöldið. Eigum við ekki að þjarma að Bryndísi eða réttara sagt þiggja hennar góða boð um að skjóta yfir okkur skjólshúsi?

11 comments:

Anonymous said...

Já það verður sko fjör á prestssetrinu hjá prestfrúnni þegar hinar villtu máladeildardömur fara að djúsa og djamma eins og þeim einum er lagið....en verðum við bara þrjár..ég, Anna Stína og Steinunn?:)Ég bara spyr hvar eruði stelpur?

Anna Stína said...

Ætli ég verði ekki að skrifa hér aðeins að þessum orðum loknum he,he. Já ég neita því ekki að gaman væri ef við værum fleiri sem settum eitthvað hér á síðuna. Stelpur - nuddið nú stírurnar úr augunum og brettið upp ermarnar!

Anonymous said...

Ja hérna - ég sem er búin að bíða spennt eftir vegakortinu í bústaðinn til hans Hjalta og svo bara er manni ekki einu sinni boðið!!! Það er nú ekki mikið mál að bjóða 30 manns í sumarbústað eina kvöldstund!? Jæja hvað um það - það er allavegana stór kostur að geta gengið syngjandi niður á Græna hattinn og eins gott að fara að finna litlu MA-söngbókina og að rifja upp - trall-lall- laaaaa!!! Ég lofa að vera góð og stillt og ekkert að reyna neitt við Svavar frænda og styggja ekki neina ketti! Sjáumst von bráðar - kv.Helga.

Anonymous said...

je suis la,je vient (er þetta ekki annars rétt skrifað, það væri nú gaman að fá eins og einn frönskutíma? ha?)

Anna Stína said...

Halló Gunnhildur - frábært! þýðir þetta annars ekki örugglega að þú ætlir að koma - en hvað með óvissuferðina? Var ég annars nokkuð búin að heyra frá þér með það? Anna K.

Anonymous said...

Best að gera loks vart við sig hér. Mér líst vel á að endurtaka heimsókn á prestsetrið hennar Bryndísar. Styð hugmyndir um að panta mat (einfaldast). Hlakka til að hitta ykkur.
Kv. Villa

Anonymous said...

jæja, þá er best að reyna að taka einhvern þátt en ekki bara dást að ykkur hinum, dáist að Bryndísi að nenna að fá okkur allar, gaman hefði verið að fá ykkur hingað á "óðalið" en það er nokkuð úr alfaraleið !! en ég kem og vonast eftir góðri mætingu, hver kemur með gítarinn? Kv Silla

Anna Stína said...

Ég skal koma með gítarinn en kann hins vegar ekki að spila á hann - er einhver sem kann það? Spilaði ekki Steinunn á gítar? Man þetta bara ekki:(
Trúi ekki að við þurfum að leita á náðir sóknarprestsins með þetta?
Kv. Anna K.

kgh said...

sælar allar loksins prófar maður þetta en skelvilega er mér illa við allt sem er með tökkum og þess háttar þar til ég kann á það. Búin að finna söngbókina en hún er að fara á límingunum, ekki ég! Þá er það að muna eftir bókinni og helst myndavél. Stelpur nú kann ég líka að senda sms, efast um að ég hafi kunnað það fyrir 5 árum. Hlakka til að sjá ykkur, kv kgh

kgh said...

Frábært! Er ég ekki snillingur, þarna tókst mér líka að taka þátt í blogginu-sjáumst!

Anna Stína said...

Gaman að þessu Gunna - Hvað skyldi maður nú verða búin að tileinka sér af nýrri tækni á 30 ára afmælinu?
Það er best að hella sér bara út í þetta - og læra svo af mistökunum:) Ég átti til dæmis nokkur tilhlaup í að byrja að skrifa hér inn á þessa heimasíðu en er nú orðin helv.. góð.
Sjáumst á morgun