
Smátt og smátt raðast djammdagskráin saman. Hjalti segist vera til í að hýsa bekkjarpartý A+B í sumarbústað þeirra systkina, ca. 6 km sunnan Akureyrar (rétt norðan Knarrarbergs þar sem Tómas Ingi bjó eitt sinn. Þetta er sem sagt að kvöldi laugardagsins 14. júní, síðan er stefnt að því að allir bekkirnir geti hist á pöbbinum Græna hattinum um kl. 23 um kvöldið. Nú er bara að finna gönguskóna og sparikjólinn, stelpur!
3 comments:
Er þetta ekki hér með ákveðið?
Djííí ekki man ég hvar Tómas Ingi bjó. Fáum við ekki nánari lýsingar á staðsetningunni? Og svo annað - hvernig ætlið þið að fara þangað?
Helga mín - bara að vera í nógu stuttu pilsi og sexi sokkabuxum og standa svo út við Leirunesti og húkka sér far:)
Nei, nei ætli við reynum ekki að koma með nánari staðsetningu þegar nær dregur og sjá svo til með að sameinast um bíla. Ég gæti nú fengið minn mann til að skutlast með okkur a.m.k. aðra leið (erum á 7 manna bíl svo það komast 6 farþegar), og svo er spurning með aðrar sem hafa yfir bíl (og bílstjóra:) að ráða. Við verðum bara að vera í góðu sambandi þegar fer að hilla undir þetta.
Ætli bakaleiðin verði ekki bara í TAXA?
Post a Comment