23.4.08

Nú getum við allar verið með - og koma svo stelpur - láta í sér heyra

Nú er ég komin í samband og vonandi á réttan hátt í þetta sinn:)
Verum nú duglegar að spjalla hér stelpur!
Anna Stína

5 comments:

Anonymous said...

Fyrst mér tókst þetta verðið þið hinar ekki í vandræðum með þetta:)

Anonymous said...

Hæ. Er að reyna commentakerfið í annað sinn. Skemmtilegur vettvangur :)

Hildur

Steinunn said...

Nú hafa allar A-gellur verið skráðar inn sem "authors" og geta tjáð sig bæði í skilaboðaskjóðuna og í færslum á síðunni. Tölvupóstur á leiðinni þess efnis.

Hildur said...

eftir góða frumhlaupsæfingu tókst þetta hjá mér líka :)

Er farin að leita að myndum frá Spáni.

Árný said...

Árný mætt. Er varla að ná þessu með 25 ára stúdentsafmæli. Í gegnum tíðina hef ég verið á fullu við að koma nýstúdentum upp á pall á 17. júní og lítinn gaum gefið þessum drukknu - en hressu - júbílöntum. En nú er dæmið tvöfalt hjá mér; eldri dóttirin er nýstúdent og ég sennilega ein af þessum drukknu...