
Úr Carmínu 1983
"Máladeild Menntaskólans á Akureyri mun um allan aldur hafa verið sú deild sem mestrar virðingar og aðdáunar hefur notið. Og þessi síðasti árgangur "lærðu stúdentanna" mun ekki standa hinum fyrri að baki nema síður væri. Þar eru nítján efnileg fljóð og um ekki þurfa að örvænta að kvenskörunga muni skorta á næstunni. Þessi ungu fljóð hafa hina ýmsu hæfileika til að bera, svo sem að kunna skil á verði fóðurbætis og tíðni riðuveiki á Íslandi. Vera með afbrigðum stundvísar, nema örfáar undantekningar og margt fleira sem mun koma sér vel á hinum ýmsu sviðum atvinnulífsins. Þess má geta að gáfnafar er allstaðar yfir meðallagi, enda verður dúxinn í ár líklega úr þeirra hópi. En einn er þó galli á gjöf Njarðar og hann er sá að þessum ungi drósum kemur ekki vel saman og sannast þar að konur eru konum verstar. Oft kemur til harðra orðasenna og jafnvel handalögmála, og hefur þessi ljóður á ráði þeirra helst bitnað á Jóni Má. En með kvenlegum yndisþokka hefur stúlkunum tekist að töfra Gísla og Aðalstein upp úr skónum og eru þar í miklu uppáhaldi. Sannast þar annað máltæki að ástin er blind. Og þessar dömur eru þeim verstar sem þær unna mest; Rafn hefur varla stundlegan frið f. þeim,svo sækja þær á hann með hin smæstu smáatriði til að pína hann og kvelja sem mest. -
En brátt mun samverustundunum lokið og mun náttúran líklegast fara að segja til sín og þær munu finna sér maka við hæfi, líklega bitnar þá þessi árásargirni á þeim, ein eiginmaðurinn er nú einu sinni þolinmóðasta húsdýrið...
Um ókominn aldur mun þessara ungu og viðkvæmu stúdína verða minnst með virðingu og aðdáun, enda munar um svo fríðan hóp sem genginn er á brott úr faðmi skilningsríkra skólayfirvalda og þjáningasystkina í neðri bekkjum. Orðstír þeirra deyr aldrei."



2 comments:
dásamlegur texti við vorum svo fyndnar....þetta finnst mér best..
"og mun náttúran líklegast fara að segja til sín og þær munu finna sér maka við hæfi, líklega bitnar þá þessi árásargirni á þeim, en eiginmaðurinn er nú einu sinni þolinmóðasta húsdýrið..."hrein snilld finnst ykkur ekki?
Bryndís
Fríð voru fljóðin og ásjáleg,
fegurðin var grafalvarleg.
Væn eru enn og viturleg
og væntanlega ei ófríðleg.
Eins og þið sjáið er mér ekki tamt að tala í ljóðmælum. En myndin er skemmtileg. Myndin af 3B er ekki síðri. Ég minnist þess að Ásmundur hafði orð á því við mig að ég hlyti að hafa séð eitthvað markvert þarna uppundir loftinu. Ég er eins og kerling með kryppu, verð að rétta úr mér! kv gott
Post a Comment